Fréttir

eurojackpot

Vinnupása skilaði vinning

3. Jul 2026, 10:54

Heppinn Íslendingur vann tæpar 65 milljónir króna þegar hann fékk 3. vinning í Eurojackpot.

Rúmlega fimmtugur karlmaður, sem spilar reglulega í leikjum íslenskrar Getspár, neyddist til að taka örlitla pásu á annasömum vinnudegi vegna hægagangs samstarfs félaga. Á meðan hann beið heyrði hann Eurojackpot auglýsingu í útvarpinu.

Hafði heppnina með sér í Lottó appinu

Hann var ekki lengi að grípa símann, opna lottó appið og kaupa einn miða með sjálfvali. Töfin átti heldur betur eftir að skila sér því daginn eftir þegar fjölskyldumeðlimur hafði orð á sinni eigin lottó heppni, laumaðist hann í símann til að athuga með sinn miða. Þar blasti við 3. vinningur upp á 64,9 milljónir!

Rétti hann þá eiginkonunni símann sem ætlaði ekki að trúa þessu. Vinningurinn kemur á frábærum tíma því hjónin hafa verið að safna sér fyrir framtíðar framkvæmdum. Hluta vinningsins ætlar hann einnig að nýta til að aðstoða börnin sín sem safna fyrir fyrstu fasteigninni.

Starfsfólk Íslenskrar getspár hefur það skemmtilega hlutverk að slá reglulega á þráðinn til nýrra vinningshafa með góð tíðindi. Heppnin virðist vera með Íslendingum þessa dagana og gleðin alltumlykjandi. Allir vinningshafar fá innilegar hamingjuóskir og um leið fá allir spilarar innilega þakkir fyrir veittan stuðning. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af öllum þeim ágóða sem Lottó gefur af sér.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 6. október

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en 11 miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 120 milljónir króna. Sex miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Danmörku, tveir í Tékklandi og einn í Noregi. Þá voru 16 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hve... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - enginn með 1. vinning!

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot kvöldins en sex skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 76,8 milljónir. Þrír miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Danmörku og einn í Póllandi.  Þá voru 10 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 26 milljónir.  Sjö miðar voru keyptir í Þýska... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 29. september 2026

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Eurojackpot útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmlega 155 milljónir króna í vinning. Annar miðanna var keyptur í Þýskalandi og hinn í Danmörku. Þá voru níu miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 19 ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 25. september

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Eurojackpott útdrætti kvöldsins en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra 85,7 milljónir króna í vinning. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Hollandi.Þá voru 13 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 14 milljón... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 22. september

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 59 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Tékklandi og tveir í Þýskalandi. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og fá þeir rúmar 27 milljónir hver. Einn miði var keyptur í Slóveníu, tvei... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir