Heppinn miðahafi í Póllandi var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og fær hann rúman 1,5 milljarð króna í vinning. Þrír miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra tæpar 62,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Króatíu, Þýskalandi og á Spáni. Þá voru tíu miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 10,5 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir Hollandi, Króatíu, Slóveníu, Svíþjóð, Grikklandi, tveir miðar í Finnlandi og þrír miðar í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2. vinning og fær hann 100.000 krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó appinu.