Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld en stálheppinn Finni var einn með 2. vinning og fær rúmar 187,3 milljónir króna í sinn hlut. Tveir miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hvor þeirra rúmar 52,8 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Póllandi og Þýskalandi. Íslendingur var einn af þeim fjórtán sem skipta svo á milli sín 4. vinningi og fær hann rúmar 1,2 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Enginn var með 1. eða 2. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 1.865.