Heppinn miðahafi í Þýskalandi var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot og fær hann rétt tæpan 14,1 milljarð króna í vinning. Sex miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 72,4 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Grikklandi, Ungverjalandi, Póllandi og þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi. Þá voru 22 miðhafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 11 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Litháen, Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi og 17 miðar voru keyptir í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Einn miðanna var keyptur í Lottó appinu en fjórir miðanna eru í áskrift.