Heppinn Norðmaður var einn með fyrsta vinning og hlýtur hann rúmar 625 milljónir króna í vinning. Tveir Norðmenn voru með annan vinning og fær hvor þeirra rúmar 180 milljónir króna í vinning. En heppinn spilari í Lotto-appinu var með hinn al-íslenska 3.vinning og fær fyrir það rúmar 1,6 milljónir króna.
Tveir heppnir miðahafar voru með allar tölur réttar í réttri röð í Jókernum og hlýtur hvor þeirra tvær milljónir króna í vinning. Annar miðinn var í áskrift en hinn var keyptur í Euro Market, Stakkholti, Reykjavík. Einn áskrifandi var síðan með annan vinning í jókernum og hlýtur hann 100 þúsund krónur í vinning.