Fréttir

getraunir

XG hættir

31. Jan 2025, 14:34

Ákveðið hefur verið að hætta að bjóða upp á leikinn XG sem hefur verið rekinn í samstarfi við Svenska Spel síðan haustið 2022.

Það er sameiginleg ákvörðun fyrirtækjanna að hætta með leikinn og verður uppsafnaður vinnings pottur XG notaður til að búa til risapotta á Getrauna seðlum í samstarfi við Svenska Spel.

Síðasti XG seðill sem boðið er upp á fer fram laugardaginn, 1. febrúar 2025. Eftir það verður ekki hægt að kaupa miða í þennan leik.

getraunir

Sunnudagsseðill lokar á laugardegi

Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí  og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira

getraunir

Þrír með 13 rétta í Enska

Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.

getraunir

Tveir vinir með 13 rétta

Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta.  Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í fé... Lesa meira

getraunir

Vann 17,4 milljónir á Enska getraunaseðilinn

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning. Tipparinn var orðinn verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á l... Lesa meira

getraunir

Tippari með tæpar 2 milljónir á Miðvikudagsseðlinum

Tippari sem styður Víking Ólafsvík vann í gær tæpar 2 milljónir fyrir að vera með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum. Tipparinn notaði kerfi S-0-10-128 sem gefur honum möguleika á að setja tvö tákn á  tíu leiki og setja eitt merki á þrjá leiki. Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664 krónur. Ke... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir