Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 76,3 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir Svíþjóð, Finnlandi og þrír í Þýskalandi. Ellefu miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 19,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Króatíu, Ítalíu, Slóveníu, Póllandi og sex í Þýskalandi.
Þá var einn heppinn Íslendingur með 4. vinning og hlýtur hann 1.044.210 krónur. Sá miði var keyptur á lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í vinning. Einn miði var keyptur á lotto.is, einn miði er í áskrift og tveir miðar í Appinu.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 3.843.