Fyrsti og annar vinningur gengu hvorugir út að þessu sinni í Vikinglotto kvöldsins.
Hin al-íslenski bónusvinningur gekk hins vegar út og var þar einn miðahafi sem fær rúmar 2 milljónir í sínar hendur. Miðinn var keyptur á N1 Gagnvegi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en sex miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Miðarnir voru keyptir Happahúsinu Kringlunni, lotto.is, þrír í Appinu og einn er í áskrift.