Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins en 3 miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 85,1 milljónir króna í sinn hlut. Tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi og einn á Spáni. Fjórir miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 35,9 milljónir króna í sinn hlut. Einn miði var keyptur í Svíþjóð og þrír í Þýskalandi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jóker útdrætti kvöldsins.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.960.