Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en einn heppinn miðahafi í Tékklandi var með 2. vinning og fær hann rúmar 200,8 milljónir króna í sinn hlut. Þrír miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 37,7 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Þýskalandi og Slóveníu.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jóker útdrætti kvöldsins.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.526.