Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en fimm heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 55 milljónir króna í vinning. Fjórir miðanna voru keyptir í Þýkalandi og einn á Spáni. Þá voru átta miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra tæpar 19,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Tékklandi, Póllandi, Finnlandi og fjórir miðanna í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir áskrifendur voru með 2. vinning og fær hvor þeirra 100.000 krónur í vinning.