Stálheppinn miðahafi í Münster í Þýskalandi var einn með 1. vinning og fær rúmlega 14,5 milljarða króna í sinn hlut. Fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 64,4 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Póllandi, Spáni og tveir í Þýskalandi. Þrír miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 60,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Ítalíu og Þýskalandi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jóker útdrætti kvöldsins.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 3.571.