Enginn var með allar tölur réttar og verður 1. vinningur því 2faldur næsta laugardag. Einn var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmlega 450 þúsund krónur, miðinn var keyptur í Jolla við Helluhraun í Hafnarfirði.
Það var heldur enginn með 1. vinning í Jóker en 8 miðahafar nældu sér í 2. vinning sem hljóðar upp á 100 þúsund krónur, sex miðanna voru keyptir í Holtanesti í Hafnarfirði og tveir í Lottóappinu.