Fréttir

lotto

eurojackpot

„Loksins gerist eitthvað gott!“

30. Oct 2026, 14:31

Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem hefur verið að glíma við heilsubrest og tjón á heimilinu var ein með allar tölurnar réttar. „Loksins gerist eitthvað gott!“ sagði konan þegar hún kom loks upp orði. Það er því ljóst að stóri vinningurinn hefði ekki getað komið á betri tíma fyrir þessa fjölskyldu sem hefur hingað til verið frekar grátt leikin af örlögunum en horfir nú bjartari augum fram á veginn - enda á eitt af fyrstu verkunum að vera langþráður nýr bíll!

Annar heppinn spilari sem vann stóran vinning heimsótti einnig höfuðstöðvar Íslenskrar getspár í vikunni og í því tilviki var lukkan kannski í genunum. Kona sem vann 3. vinning í Eurojackpot, tæpar 19 milljónir króna, sagði frá því að móðir hennar hefði unnið þann stóra í Lottó fyrir mörgum árum. „Nú fæ ég að vinna eins og mamma!“ sagði þessi heppni áskrifandi sem ætlaði m.a. að nýta fjármunina til að hjálpa uppkomnum börnum sínum við hinar ýmsu framkvæmdir sem þau standa í um þessar mundir.

Vitað er að starfsfólki Íslenskrar getspár finnst fátt skemmtilegra en að taka á móti heppnum spilurum og þeir eru orðnir ansi margir á þeim 40 árum sem eru liðin frá því að fyrst var spilað í Lottó á Íslandi. Og vonandi verða þeir bara sem allra flestir!

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 30. október

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 133 milljónir króna í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Þýskalandi og einn miðinn í Noregi. Þá voru átta miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 18 milljónir. Tveir miðar voru keyptir ... Lesa meira

lotto

eurojackpot

„Loksins gerist eitthvað gott!“

Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem hefur verið að glíma við heilsubrest og tjón á heimilinu var ein með allar tölurnar réttar. „Loksins gerist eitthvað gott!“ sagði konan þegar hún kom loks upp orði. Það er... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 27. október 2026

Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot útdrætti kvöldsins, en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra 91.7 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi og á Ítalíu. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 20.6 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, N... Lesa meira

vikinglotto

eurojackpot

getraunir

Vetrartími í Evrópu

Nú er vetrartíminn genginn í garð víðast hvar í Evrópu og hefur það áhrif á hvenær lokað er fyrir sölu í Vikinglotto, EuroJackpot og á Enska getraunaseðlinum. Lokað er fyrir sölu klukkan 17:00 á miðvikudögum í Vikinglotto, klukkan 18:00 á þriðjudögum og föstudögum í EuroJackpot og klukkan 14:00 á laugardögum á Enska ge... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Einn heppinn miðahafi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær því rúmlega 45,6 milljón krónur í vinning.  Miðinn var keyptur hér á heimasíðu okkar, lotto.is. Þá skipta fjórir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 160 þúsund krónur í vinning. Þrír vinningshafar eru áskrifendur en einn keypti mið... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir