Potturinn verður 5faldur næst!
Enginn var með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins en þrír voru með bónusvinninginn sem færir þeim rúmlega 538 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur í Versluninni Bakkanum á Eyrarbakka og tveir á lotto.is
Einn heppinn Jóker spilari nældi sér í 2 milljónir en hann var með allar tölur réttar í réttri röð. Miðinn er í áskrift
Þá voru fjórir spilarar með 2. vinning sem færir þeim 100 þúsund krónur. Tveir miðar voru keyptir á lotto.is, einn á Orkunni á Dalvegi og einn í Lottóappinu.