Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 20,8 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði. Einn áskrifandi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmar 528 þúsund krónur.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Einn miði var keyptur í Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík, einn miði var keyptur í Lottó appinu og tveir miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 5.547.