Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær hann rúmar 960 þúsund krónur í sinn hlut.
Fyrsti vinningur í Jóker gekk ekki út að þessu sinni en fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu, einn í Olís, Esjubraut 45 á Akranesi og einn er í áskrift.
Fréttir
lotto
Lottó - Þrefaldur næst!
13. Apr 2024, 19:22