Einn heppinn Lottó spilari var með 1. vinning og fær hann rúmar 27 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift . Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 500 þúsund krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á heimasíðunni okkar lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en átta miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur í Olís Garðabæ, þrír voru keyptir í lottó appinu og fjórir eru í áskrift.