Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld og því verður potturinn fjórfaldur næsta laugardag. Þrír miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rétt rúmar 235.000 krónur í vinning. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu og einn á vef okkar lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Dzien Dobry í Lóuhólum, á vef okkar lotto.is og tveir miðanna í lotto appinu.