Fréttir

lotto

„Eins og eitthvað væri að pikka í mig...“

14. Aug 2026, 14:31

Tvær ólíkar leiðir að stóru Lottóvinningunum um síðustu helgi

Það voru tveir vinningshafar sem skiptu með sér einföldum 1. vinningi í Lottó síðastliðinn laugardag og fær hvor um sig rúmar 5,9 skattfrjálsar milljónir króna í vinning. Þau heppnu eru bæði rétt rúmlega fimmtug og búsett á höfuðborgar-svæðinu. Og þótt þau hafi haft sömu tölurnar réttar var leiðin að vinningnum ólík.

Annar vinningshafinn, kona sem keypti miðann sinn í Lottóappinu, sat ásamt manni sínum í mestu makindum fyrir framan sjónvarpið á laugardagskvöldinu þegar hana grunaði allt í einu að hún ætti að athuga Lottómiðann sinn. „Það var eiginlega eins og eitthvað væri að pikka í mig að fara inn í appið og skoða miðann,“ sagði hún þegar haft var samband við hana. Þegar hún opnaði appið blasti við henni sú ótrúlega staðreynd að hún var með allar tölurnar réttar. Það tók þó svolítið langan tíma að meðtaka tíðindin. „Ég held að ég hafi farið inn í appið aftur og aftur alla helgina til að ganga úr skugga um að þetta væri ennþá þarna og að þetta hefði ekki bara verið draumur,“ sagði hún og hló.

Hinn vinningshafinn var með miðann sinn í öruggri áskrift og hafði enga hugmynd um að hann væri allt í einu orðinn rúmum 5,9 milljónum króna ríkari. Starfsfólki Íslenskrar getspár gekk heldur brösulega að ná í hann á mánudagsmorguninn þar sem alltaf var slökkt á símanum hans. Eftir nokkrar tilraunir náðist loks samband síðar um daginn og þá kom skýringin í ljós. Vinningshafinn hafði einfaldlega verið sofandi eftir næturvakt nóttina áður án minnstu hugmyndar um símtöl og nýfenginn milljónavinning. Báðir vinningshafarnir voru að vonum afar ánægðir með vinninginn og sögðu hann koma á sérstaklega góðum tíma.

Við óskum vinningshöfunum hjartanlega til hamingju með vinninginn og þökkum um leið öllum spilurum fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Stál heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Fjarðarkaupum, Hafnafirði. Þrír skiptu svo með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 400 þúsund krónur í vasann. Tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu og ei... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 12. september - Sexfaldur næst

Lottópotturinn verður sexfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins. Þá voru tveir heppnir með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra 493 þúsund krónur.  Einn miði var keyptur í Olís Mjódd og einn miði var keyptur á lotto.is Einn heppinn miðahafi var með 1. vinning í Jóker kvöldsins og ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir