Einn heppinn miðaeigandi var heldur betur með heppnina með sér þetta laugardagskvöld en hann einn hlýtur 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins. Fær hann rúmar 8,9 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Krambúðinni á Hólmavík.
Einn miðahafi var með bónusvinninginn sem færir honum rúmar 409 þúsund krónur. Miðinn var keyptur á Olís á Selfossi.
Þá voru sjö vinningshafar með 2. vinning í Jóker kvöldsins sem veitir þeim öllum 100 þúsund krónur. Þrír miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír eru í áskrift og einn var keyptur í Vídeómarkaðinum í Kópavogi.