Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar að þessu sinni. Tveir heppnir áskrifendur skipta bónusvinningnum á milli sín og fær hvor rúmar 350 þúsund krónur í sinn hlut.
Enginn var með 1. vinning í Jókernum en fjórir miðaeigendur fengu 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu, einn er í áskrift og einn var keyptur hjá N1, Skógarseli 10.
Fréttir
lotto
Fjórfaldur Lottópottur næsta laugardag!
15. Jun 2024, 19:37