Enginn var með allar tölur réttar í Lottói vikunnar og verður potturinn því 4faldur á þorláksmessu. Fjórir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 353 þúsund krónur, miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum; Olís við Sæbraut í Reykjavík, N1 í Fossvogi í Reykjavík, einn var keyptur í appinu og einn er í áskrift.
Af Jóker er það að segja að enginn var með 1. vinning en þrír náðu að landa 2. vinningi og fær hver þeirra 100 þúsund kall í vasann, allir miðarnir voru keyptir á lotto.is.