Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 8,9 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Einn áskrifandi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmar 409 þúsund krónur.
Tveir voru með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fá 2 milljónir króna hvor. Annar miðanna var keyptur á N1 á Sauðárkróki og hinn miðinn er í áskrift. Sjö miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Iceland, Seljabraut í Reykjavík, á lotto.is og fimm miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 4.747.