Tveir heppnir miðahafar voru með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hvor þeirra rétt rúmar 10 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir í Orkunni Fitjum í Reykjanesbæ og Hjá Jóhönnu á Tálknafirði. Einn áskrifandi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmar 510 þúsund krónur í vinning.
Fimm miðahafar nældu sér í 2. vinning í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir á N1 á Sauðárkróki, einn í Lottó appinu, einn á heimasíðu okkar lotto.is og tveir miðanna eru í áskrift