Og potturinn stækkar! Fimmfaldur pottur næsta laugardag þar sem enginn náði að næla sér í hann í þetta skipti.
Bónusvinningurinn fór þó í hendur tveggja miðaeigenda og fá þeir rúmar 416 þúsund krónur í sinn vasa. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu okkar.
Jókerinn var gjafmildur í kvöld en þrír miðaeigendur voru með 1. vinning sem veitir þeim öllum 2 milljónir króna. Tveir keyptu miðana sína í Lottó appinu okkar en einn er með miðann sinn í áskrift.
Sex miðaeigendur voru með 2. vinning og fá þeir allir 100 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðahafi er með miðann sinn í áskrift en aðrir miðar voru keyptir á N1 Ísafirði, N1 Borgarnesi, Olís Gullinbrú, Versluninni Bakkinn á Eyrarbakka og Siglósporti á Siglufirði.