Stálheppinn áskrifandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 54,3 milljónir króna í sinn hlut. Fjórir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmar 390 þúsund krónur. Tveir miðar voru keyptir á lotto.is og tveir miðar eru í áskrift.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en sjö miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Einn miði var keyptur í Hagkaup, Skeifunni í Reykjavík, einn miði á N1, Stórahjalla í Kópavogi, einn miði á lotto.is, tveir miðar í Appinu og tveir miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 9.301.