Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Einn heppinn miðahafi var með 2. vinning og fær hann rúma hálfa milljón í sinn hlut, miðinn var keyptur í Lottó appinu.
Jóker kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni en þrír miðhafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Miðarnir voru keyptir í Jolla í Hafnarfirði, Lottó appinu og á vef okkar lotto.is.