Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því tvöfaldur næstkomandi laugardag. Einn heppinn miðahafi var með bónusvinninginn og fær hann rétt tæpar 430.000 krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is.
Jókerinn gekk út að þessu sinni en tíu miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Miðarnir voru keyptir í N1 á Ártúnshöfða, Fjarðarkaupum, Dzien Dobry í Lóuhólum, þrír í lottó appinu, tveir á vef okkar lotto.is og tveir miðanna eru í áskrift.