Fréttir

lotto

900 krónur urðu að 45 milljónum!

20. Feb 2026, 15:21

Það var sannkallað heppniskvöld hjá einum spilara síðastliðið laugardagskvöld þegar þrefaldur Lottópottur skilaði honum ríflega 45 milljóna króna fyrsta vinningi. Vinningsmiðinn, sem kostaði aðeins 900 krónur, var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni.

Þegar hann sá síðastliðinn sunnudag að fyrsti vinningur hafði gengið út, ákvað hann að renna yfir miðann sinn og þá blasti sannleikurinn við.

„Ég ætlaði alls ekki að trúa þessu,“ segir vinningshafinn og hlær. Fyrsta sem hann gerði var að segja konunni sinni gleðifréttirnar, en hún var ekki síður vantrúuð: „Við horfðum bæði á hvort annað og hugsuðum að þetta væri nú örugglega rangt.“

 Hann viðurkennir að svefninn um nóttina hafi verið nánast enginn. „Ég er eiginlega enn að reyna að átta mig, þetta er ólýsanleg tilfinning,“ segir hann og bætir við að gleðin hafi verið yfirþyrmandi.

Hjónin eru þó ekki alveg sammála um hvað eigi að gera fyrst.
Konuna dreymir um nýtt parket en hann horfir frekar til þess að slaka aðeins á og njóta þess að vera orðinn nýbakaður lottómilljónamæringur.

Starfsfólk Íslenskrar getspár óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt sem njóta góðs af sölu Lottó.

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Þrefaldur pottur næst!

Hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn gengu út í Lottó útdrætti vikunnar.verður potturinn þrefaldur næsta laugardag. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn er í áskrift. Svo voru tólf miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 125.000 kr hver. Fimm miðar eru í áskr... Lesa meira

lotto

Lottó - 2 faldur næst!

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 403 þúsund krónur  í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Póló vape shop á Bústaðavegi. Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2,5 milljónir k... Lesa meira

lotto

Hélt að verið væri að gera grín í sér

Einn heppinn og tryggur áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn er skattfrjáls og kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Það tók þó dágóða stund fyrir vinningshafann að át... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir