Það beit hressilega á agnið hjá tveimur spilurum sem tóku þátt í Lottó að þessu sinni en þeir skiptu með sér þreföldum potti og hlýtur hvor þeirra rétt tæplega 17,9 milljóna króna vinning. Annar miðinn var keyptur á lotto.is en hinn í appinu.
Einn var með 1. vinning í Jóker og fær hann 2ja milljóna króna vinning, miðinn var keyptur á lotto.is. Þá voru tveir með 2. vinning sem hljóðar upp á 100 þúsund kall, báðir miðarnir eru í áskrift.