Fréttir

lotto

Tvær fjölskyldur losna alveg við húsnæðislánin sín

22. Oct 2025, 10:52

Fyrsti vinningurinn í Lottó um síðustu helgi hljóðaði upp á heilar 172.467.020 krónur og var hann sá stærsti hingað til. Af þeim 16.892 vinningshöfum sem fengu vinninga voru tveir spilarar þó heppnastir allra er þeir skiptu með sér sjöföldum fyrsta vinningi og hlutu hvor um sig rúmlega 86,2 skattfrjálsar milljónir.

„Þetta slekkur alveg á húsnæðisláninu“ var það fyrsta sem tæplega fimmtug hjón sögðu er þau mættu í Laugardalinn með vinningsmiðann en fjölskyldan sem býr á höfuðborgarsvæðinu hafði keypt miðann góða í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. „Við erum búin að vera á leiðinni að endurnýja bílinn í einhvern tíma svo það verður einnig klárað núna og svo verðum maður alveg að leyfa sér að leika sér smá“ sögðu vinningshafarnir brosandi, annars sögðu þau tilfinninguna vera algjörlega ólýsanlega og hvorugt þeirra varla enn farin að trúa þessu.

Hinn vinningshafinn, rétt rúmlega fimmtugur fjölskyldufaðir, hafði keypt sinn miða í appinu. Helgin var þéttbókuð og því hafði hann hvorki hugsað meira út í miðann né munað eftir því að segja konu sinni frá miðakaupunum. Hann hafði því enga hugmynd um vinninginn. „Ég var eiginlega á báðum áttum hvort ég ætti að svara þar sem ég kannaðist ekkert við númerið,“ sagði hann og hló. „Svo þegar ég svaraði og fréttirnar komu, þá hélt ég nú fyrst að þetta væri grín. Ég átti alls ekki von á þessum fréttum, bara aldrei. Vinningurinn kemur á afar hentugum tíma, þar sem fjölskyldan er búin að vera að reyna leggja pening til hliðar síðustu mánuði fyrir stórum viðburði á næsta ári og núna allt í einu er til fyrir honum öllum en fyrst af öllu verður að greiða upp lánin“ sagði vinningshafinn glaður.

Við óskum vinningshöfunum báðum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Stál heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Fjarðarkaupum, Hafnafirði. Þrír skiptu svo með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 400 þúsund krónur í vasann. Tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu og ei... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 12. september - Sexfaldur næst

Lottópotturinn verður sexfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1.vinning í útdrætti kvöldsins. Þá voru tveir heppnir með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra 493 þúsund krónur.  Einn miði var keyptur í Olís Mjódd og einn miði var keyptur á lotto.is Einn heppinn miðahafi var með 1. vinning í Jóker kvöldsins og ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir