Ljónheppinn miðaeigandi var einn með allar tölurnar réttar og fær hann óskiptan fjórfaldan Lottópott kvöldsins sem nam rúmlega 55,6 milljónum króna. Vinningsmiðinn var keyptur á heimasíðunni okkar, lotto.is. Þá voru þrír með bónusvinninginn og fá þeir rúmar 270 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, í appinu og á lotto.is.
Fjórir voru með 2. vinning í Jókernum og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Tveir miðanna eru í áskrift, einn var keyptur í Lottó appinu og einn í Söluskálanum Björk á Hvolsvelli.