Lottópotturinn verður fimmfaldur næstkomandi laugardag þar sem enginn var með allar tölur réttar í útdrætti kvöldsins. Tveir heppnir miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmar 516 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaup í Hafnarfirði og á N1 í Borgarnesi.
Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Miðann keypti hann á heimasíðu okkar, lotto.is. Þá voru sex miðahafar sem voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Einn miðinn var keyptur í Mini Market á Smiðjuvegi í Kópavogi, einn á heimasíðu okkar lotto.is, tveir miðanna eru í áskrift og tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu.