Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 8,7 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Einn áskrifandi var með bónusvinninginn og hlýtur hann rúmar 400 þúsund krónur.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna. Miðahafinn er með miðann sinn í áskrift.
Fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur á lotto.is, einn á N1 Fossvogi og tveir miðanna eru í áskrift.