Það var stuðningsmaður Knattspyrnufélags Fjallabyggðar sem var með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag. Fékk hann í sinn hlut 1.140.000 krónur.
Tipparinn tippaði á opinn seðil og tvítryggði 7 leiki. Miðinn kostaði 1.664 krónur.
Lokaleikurinn á seðlinum var viðureign Newcastle - Asenal sem tipparinn hafði tvítryggt þannig að hann mátti fara jafntefli eða sigur Arsenal. Það þyngdist því búninn á tipparanum þegar Newcastle náði forystu í síðari hálfleik en gleðin var fölskvalaus þegar Noni Madueke jafnaði leikinn fyrir Arsenal og tryggði 13 rétta og 1.1 milljón króna í hús.