Heppinn áskrifandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 19,5 milljónir króna í vinning. Bónusvinningurinn gekk ekki út að þessu sinni.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur. Miðarnir voru keyptir á Vestur Restaurant á Patreksfirði, á vef okkar lotto.is og þrír miðanna í Lottó appinu.