Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 8,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur í Lottó appinu. Tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hvor þeirra rúmar 195 þúsund krónur. Miðarnir eru báðir í áskrift.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann tvær milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Lottó appinu, Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík og þrír miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 3.882.