Tveir miðahafar voru með heppnina með sér og voru með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins. Fær hvor þeirra rúmar 56,9 milljónir króna í sinn hlut. Annar miðanna var keyptur á lotto.is og hinn miðinn er í áskrift. Sjö miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 214 þúsund krónur í vinning. Einn miði var keyptur í Lottó appinu, tveir miðar á lotto.is og fjórir miðar eru í áskrift.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en fimmtán miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Hagkaup á Akureyri, Vikivaka Barónstíg í Reykjavík, N1 Fossvogi í Reykjavík, Íslenskri getspá í Reykjavík, N1 Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði, N1 Hörgárbraut á Akureyri, Lukku láka í Mosfellsbæ, þrír miðar voru keyptir á lotto.is og fimm í Lottó appinu.
Heildarfjöldi vinningshafa var 18.004.