Fréttir

lotto

Vann 54 milljónir uppi í bústað

26. Jul 2024, 13:05

Það fóru efalaust margir í pottinn í sumarbústöðum landsins um síðustu helgi en fáir voru þó jafn lukkulegir og sá sem vann stóra pottinn í Lottóinu uppi í bústað með kærustunni. Þar var á ferðinni tæplega fimmtugur karlmaður sem nýtti sér tæknina í sveitasælunni til að kaupa Lottómiða í appinu á laugardeginum, enda fyrsti vinningur fjórfaldur. Þegar hann kannaði málið í appinu eftir útdráttinn blasti við stóri vinningurinn, uppá tæpar 54 milljónir.  

Stóri vinningurinn eyðilagði spilakvöldið
Hinn heppni hafði þó sínar efasemdir og þorði ekki að trúa góðu fréttunum strax, hvað þá segja kærustunni frá. Laumuspilið gerði það hins vegar að verkum að illa gekk að einbeita sér það sem eftir var kvölds að hinum hefðbundnu spilum sem spiluð voru í sumarbústaðnum. Strax eftir helgina voru góðu fréttirnar svo staðfestar hjá Íslenskri getspá og þá gat þessi lukkunnar pamfíll loks andað léttar og greint kærustunni og börnunum frá þessum frábæru fréttum.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Þrefaldur pottur næst!

Hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn gengu út í Lottó útdrætti vikunnar.verður potturinn þrefaldur næsta laugardag. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn er í áskrift. Svo voru tólf miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 125.000 kr hver. Fimm miðar eru í áskr... Lesa meira

lotto

Lottó - 2 faldur næst!

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 403 þúsund krónur  í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Póló vape shop á Bústaðavegi. Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2,5 milljónir k... Lesa meira

lotto

Hélt að verið væri að gera grín í sér

Einn heppinn og tryggur áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn er skattfrjáls og kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Það tók þó dágóða stund fyrir vinningshafann að át... Lesa meira

lotto

Úrslit í lottó 13. júní - einn með 1. vinning

Einn heppinn Lottó spilari var með 1. vinning og fær hann rúmar 27 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn er í áskrift . Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 500 þúsund krónur  í sinn hlut. Miðinn var keyptur á heimasíðunni okkar lotto.is. Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en átta miða... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir