Heppinn spilari var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rétt rúmar 20 milljónir króna. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Enginn var með bónusvinninginn í þetta skiptið.
Einn var með 1. vinning í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir í sinn hlut. Miðaeigandinn er með miðann í áskrift. Þá voru 4 miðahafar með 2. vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Jolla, Hafnarfirði, tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu og einn var keyptur á lotto.is.
Fréttir
lotto
Lottó - Einn með fyrsta vinning!
27. Jan 2024, 19:15