Heppinn miðaeigandi á Spáni var einn með 1. vinning í EuroJackpot útdrætti kvöldsins og fær hann rúma 1,3 milljarð króna í vinning. Íslendingur, sem keypti sér miða á N1, Ártúnshöfða í Reykjavík, er meðal þeirra sex sem skiptu með sér 2. vinningi og fá þeir rúmar 38 milljónir króna hver. Af hinum miðunum var einn keyptur í Finnlandi og fjórir í Þýskalandi. Ellefu miðahafar voru með 3. vinning og fá þeir rúmar 11,7 milljónir króna hver. Miðarnir voru keyptir í Lettlandi, Svíþjóð, Finnlandi, þrír í Póllandi og fimm í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 125 þúsund krónur hvor í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu.