Lottóvinningshafinn sem var einn með allar tölur réttar um síðustu helgi er fundinn og er fyrir vikið hátt í 9 milljón krónum ríkari. Sú heppna hafði keypt miðann í appinu en var aðeins með heimasíma skráðan og úrelt netfang. Þegar fréttir tóku að birtast um leitina, kíkti hún því í appið og sá þar góðu fréttirnar og hafði umsvifalaust samband við skrifstofu Íslenskrar getspár. Vinningshafinn er að vonum lukkuleg með allar milljónirnar og hefur þegar uppfært allar sínar upplýsingar í Lottóappinu og hvetur aðra spilara til að gera slíkt hið sama.
Tengdar fréttir
lotto
Fyrsti vinningur gekk ekki út í Lottó útdrætti kvöldsins en einn miðahafi var með bónusvinninginn og fær hann rétt rúmar 500.000 krónur í vinning. Miðinn er í áskrift. Heppinn miðahafi var með 1. vinning í Jókernum og fær hann tvær milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Póló Vape Shop við Bústaðarveg. Þá vor... Lesa meira
lotto
Potturinn verður tvöfaldur næsta laugardag en 1. vinningur gekk ekki út í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum sem færir þeim rúmar 206 þúsund krónur. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur í Lottó appinu. Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð en átta miðahafar voru með 2. vinn... Lesa meira
lotto
Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 9,6 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum. Sex skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra 73.900 kr. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó-appinu, þrír eru í áskrift og ei... Lesa meira
lotto
Stærsti sexfaldi pottur sögunnar gaf vel af sér um þarsíðustu helgi en alls voru um 18 þúsund manns sem fengu vinning, þar af voru sjö með bónusvinninginn og 15 voru með annan vinning í Jóker. Tveir ofurheppnir spilarar voru svo með allar tölurnar réttar og hlaut hvor um 57 milljónir í sinn hlut. Annan miðann áttu hjón... Lesa meira
lotto
Fyrsti vinningur gekk út í Lottó útdrætti kvöldsins en það voru 3 heppnir miðahafar sem skipta vinningsupphæðinni á milli sín og fá rúmar 3,1 milljónir hver. Einn miði var keyptur í Lottó appinu og tveir miðar eru í áskrift. Þá var einn áskrifandi með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 433 þúsund krónur í vinning. Eng... Lesa meira