Enginn var með 1. vinning að þessu sinni og verður potturinn því tvöfaldur um verslunarmannahelgina.
Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor rúmlega 196 þúsund krónur, annar miðinn var keyptur í appinu en hinn á lotto.is. Þá voru þrjátíu og tveir með 3. vinning og fá þeir rétt tæplega 64 þúsund í vinning hver.
Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann því 1. vinning sem nemur 2 milljónum króna, miðinn góði var keyptur á vefnum okkar lotto.is. Þá voru þrír með 2. vinning sem hljóðar upp á 100 þúsund krónur, einn miðinn er í áskrift en hinir tveir voru keyptir á lotto.is.