Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu.
Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir króna í vinning. Átta miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í sinn hlut. Sex miðahafar eru áskrifendur, tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu og einn í MójMarket, Álfabakka.