Tveir ljónheppnir miðaeigendur voru með allar tölur réttar og skipta því með sér Lottópotti kvöldsins og fær hvor þeirra rúmar 4,9 milljónir í sinn hlut. Annar miðahafana er í áskrift en hinn keypti miðann sinn á Lotto.is. Þá voru fjórir miðaeigendur með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmlega 235 þúsund í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Mini Market Smiðjuvegi, einn á Olís Sæbraut og tveir eru með miðana sína í áskrift.
Einn heppinn áskrifandi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann fyrir það 2 milljónir króna. Þá voru tveir miðaeigendur með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. Báðir miðarnir voru keyptir í appinu okkar.