Stálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 90,2 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru tveir miðahafar með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra rúmar 622 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í appinu og á lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en fimmtán miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Bjarnabúð, Brautarhóli í Reykholti, Olís Norðlingaholti í Reykjavík, Olís Ánanaustum í Reykjavík, Hönnubúð, Reykholti í Borgarfirði, á lotto.is, þrír miðar eru í áskrift og sjö miðar voru keyptir í appinu.
Heildarfjöldi vinningshafa var 11.839.