Heppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 9,8 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vefnum okkar, Lotto.is. Þá voru þrír aðrir með heppnina með sér en miðarnir þeirra færðu þeim bónusvinninginn sem er að þessu sinni rétt rúmar 150 þúsund krónur. Tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu okkar og einn miði á vefnum okkar.
Fjórir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker kvöldsins og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur hjá Jóhönnu á Tálknafirði, einn á lotto.is, einn í appinu og einn er í áskrift.