Enginn var með allar tölur réttar að þessu sinni og verður fyrsti pottur septembermánaðar því tvöfaldur. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor um sig rúmlega 220 þúsund krónur, miðarnir eru báðir í áskrift.
Fimm voru með 2. vinning í Jóker og fá því vinning upp á 100 þúsund kall, fjórir miðanna eru í áskrift en einn var keyptur í appinu. Enginn var með 1. vinning í Jóker þessa vikuna.