Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í úrdrætti kvöldsins. Þrír heppnir miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmar 174 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Fjarðarkaup, Hólshrauni 1b í Hafnarfirði, Olís, Álfheimum 49 í Reykjavík og Reykjavík food, Suðurfelli 4 í Reykjavík.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en sex miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Olís, Mjódd í Reykjavík, Lottó appinu, lotto.is og þrír miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 4.956.